JÓLAgjöfin fyrir 10-12 ára BÓKAorma!

~ Gjafabréf fyrir 10-12 ára Hraðlestrarkrakka – besta jólagjöfin – fyrir núverandi eða verðandi BÓKAorma ~

Á undanförnum árum hefur verið sívaxandi eftirspurn eftir gjafabréfum okkar til að gefa sem jólagjöf enda án efa ein besta jólagjöf sem hægt er að gefa börnunum – meiri lestraránægja – enda markmið Hraðlestrarkrakka afar einfalt, að börnin hafi gaman af því að taka upp bók sér til skemmtunar.

Kaupa JÓLAgjöf fyrir 10-12 ára BÓKAorm!

"Sonur minn 12 ára var ekki mikið fyrir að lesa þrátt fyrir hvatningu og samlestur. Mest hefur það verið hæglestur á Andrésar Andar blöðum/Syrpu. Það var frábær fjárfesting að bjóða honum á þetta námskeið. Þarna sá hann fyrst að það var skemmtilegt að taka upp bók. Nú liggur Ævintýraeyjan eftir Enid Blyton, lesin á dagsparti á sófaborðinu. Hið sama má segja um 11 ára barnabarn, sem fékk að fljóta með. Bestu þakkir."

– Kjartan Magnússon, faðir og afi

"Ég ákvað að skrá dóttir mína, sem á við mikla lesblindu að stríða, á námskeið hjá Hraðlestrarskólanum veturinn 2013. Hún ætlaði nú alls ekki að vilja fara en ég sagði henni að prófa í eitt skipti. Þegar hún var búin með fyrsta daginn, spurði ég hana hvernig hefði verið. Hún sagði ekkert í fyrstu en síðan fékk að heyra “hvers vegna í ósköpunum varst þú ekki búin að skrá mig fyrr”.
Eftir námskeiðið hefur hún tekið miklum framförum í lestri og námið reynist henni auðveldara. Hún var mjög ánægð með námskeiðið og það gleðilega er að nú var hún að biðja sjálf um að fara aftur á hraðlestrarnámskeið."

Unnur, mjög ánægt foreldri

HVER KENNIR Á NÁMSKEIÐINU?

 

Jón Vigfús er skólastjóri og aðalkennari Hraðlestrarskólans, fyrirlesari og metsöluhöfundur. Áhugi hans á hraðlestrartækninni og leiðum til að auðvelda sér nám kom til er hann var við nám í Viðskiptalögfræði á Bifröst og sá hvernig hraðlestrartæknin auðveldaði honum verulega að komast yfir allt lesefni í náminu.

Sjálfur hefur hann lesið töluvert í gegnum tíðina en í dag les hann um 6-7 bækur vikulega.  Nokkuð sem væri ekki möguleiki nema með hjálp hraðlestrartækninnar.  Hann hefur yfir 13 ára reynslu og kennt rúmlega 14.000 Íslendingum að lesa hraðar. - Sjá frekari upplýsingar um Jón Vigfús á www.h.is/jonvigfus

"Það er mér ljúft að deila með ykkur ánægjulegri reynslu minni af viðskiptum við Hraðlestrarskólann. Svör við fyrirspurnum voru skjót og góð og gjafabréfið sent í tölvupósti um leið og greiðsla hafði borist. Þægileg og fyrirhafnarlaus viðskipti, sem henta vel önnum köfnum viðskiptavinum."

Elísabet S. Ólafsdóttir
Skrifstofustjóri, Ríkissáttasemjara

Gjafabréfið sent samdægurs!

Gjafabréfið gefur handhafa þess kost á að velja sér námskeið og sitja námskeiðið þegar það hentar honum. Þar sem hann er ekki bundinn að sitja námskeiðið fyrir einhvern ákveðinn tíma. Hraðlestrarskólinn er jafnan að halda 1-2 krakkanámskeið í hverjum mánuði og því auðvelt fyrir handhafa að finna tíma og stað sem hentar þeim best.

JÓLAgjöf með KrakkaÁBYRGÐ!

Það sem vekur þó jafnan mikla athygli er að gjafabréfið okkar er með krakkaábyrgð – gjafabréfið fellur aldrei úr gildi og þegar viðkomandi hefur setið námskeiðið getur hann endurtekið námskeiðið eins oft og hann vill út þrettánda aldursárið og tryggir sér um leið afslátt inn á almennt hraðlestrarnámskeið eftir 13 ára aldur – nokkuð sem enginn annar námskeiðahaldari býður upp á í dag.

Gerðu lestur bóka að lífstíl barnsins til frambúðar.

Gerðu þessi jól að alvöru bókajólum hjá barninu - því þegar það les hraðar, verður einbeiting og lestraránægjan alltaf meiri! Enda hafa allir nemendur Hraðlestrarskólans verið sammála um það í gegnum tíðina að meiri lestrarhraði og aukin lestrareinbeiting – gerir bara góða bók – mikið betri.



Taktu skrefið í DAG!

Gefðu eina bestu jólagjöf sem hægt er að gefa 10-12 ára börnum í dag – meiri lestraránægju – enda markmið Hraðlestrarkrakka afar einfalt, að börnin hafi gaman af því að taka upp bók sér til skemmtunar - og lesi að lágmarki 1-2 bækur á mánuði!

ATH. Gjafabréfið er sent samdægurs í tölvupósti og því auðvelt og fljótlegt að redda jólagjöfum með hraði sé þess þörf.


"Ég er strákur sem las lítið og var mikið að leika mér oft úti og í tölvuleikjum. En svo bauð pabbi mér á þetta frábæra hraðlestrar námskeið ásamt frænku minni (11 ára). Á fyrsta námsdeginum las ég bara ca. tvöhundruð orð á mínútu en á seinasta námsdeginum var ég búinn að margfalda lestrarhraðann og ég hef lesið margar bækur síðan."

Magnús Ingi, 12 ára Hraðlestrarkrakki

"Það var bæði gaman og lærdómsríkt að fara á þetta námskeið og ég jók lestrarhraðann talsvert mikið og nú kann ég fleiri aðferðir til að lesa og ég mæli með þessu :-)"

Elísa Elíasdóttir, 12 ára

"Þetta var mjög skemmtilegt og fræðandi námskeið og lærði mikið af því. Takk fyrir mig."

Rakel Jóhanna Ragnarsdóttir, 12 ára grunnskólanemi

"Alveg frábær skóli fyrir alla sem hafa gaman af því að lesa"

Bergur Már, 11 ára nemi

"Mér fannst námskeiðið skemmtilegt og það hjálpaði mér mjög mikið."

Orri Hjörvarsson, 12 ára nemi
Close

50% Complete

Two Step

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua.