6 vikna EINKAKENNSLA í staðnámi

 - fyrir 7-18 ára börn og unglinga!

+ 6 vikna fjarnámskeið í hraðlestri fylgir með í kaupbæti

Placeholder Image

6 vikur með kennara!

360-420 mín. með kennara - kennt í Flatahrauni 31, 2. hæð! Ásamt aðgangi að kennsluvef fyrir öll kennslugögn!

Placeholder Image

6 vikna fjarnámskeið!

730+ mín. þar sem nemanda fylgt eftir í gegnum 6 vikna æfingaferli á vef með prófum,myndskeiðum, PDF-skjölum og ýmsum aukagögnum!

Placeholder Image

Ábyrgjumst árangur!

Einkaþjálfuninni fylgir árangursábyrgð, ánægjuábyrgð og æviábyrgð - og tryggir þér rétt til að endurtaka fjarnámskeiðið + almennt hraðlestrarnámskeið (Helgarnámskeið, 3 vikna eða 10 vikna námskeið) aftur.

Placeholder Image

Katrín - 39 ára mastersnemi

„Ég heiti Katrín og mig langar að deila minni reynslu með ykkur. Ég þyki mjög góður nemandi og hóf mastersnám erlendis haustið 2013. Þetta er mjög spennandi nám, en það er óhætt að segja að ég varð fyrir nettu áfalli þegar lestrarefnið var tilkynnt. Lestrarmagnið sem kunna átti hverja viku var óheyrilega mikið og þegar fram liður stundir sá ég að þetta var mér lífsins ómögulegt að komast yfir. Nú voru góð ráð dýr og ég mundi að ég hafði alltaf ætlað á hraðlestrarnámskeið en lét aldrei verða af því. Nú var ég erlendis og vissi ekki hvernig ég átti að snúa mér. Þá sá ég að Hraðlestrarskólinn var að auglýsa einkakennslu á Netinu. Ég hafði strax samband og pantaði námskeið og fékk gögnin send um hæl. Jón Vigfús tók mér opnum örmum og við sniðum námskeiðið að þeim knappa tíma sem ég hafði. Það skipti engum togum að ég þrefaldaði leshraða minn á ensku á skömmum tíma! Fræðigreinar sem áður tók mig upp undir 4 klukkustundir að lesa, gat ég klárað á einni klukkustund. Ég er í tölfræði og þegar nemendurnir fréttu að ég væri búin að lesa alla tölfræðibókina, þá áttu þeir ekki orð, enda ekki nokkur annar búinn að reyna það! Ég nýt núna námsins og eins og svo margir, sé ég bara eftir því að hafa ekki pantað einkakennslu fyrr. Frábært að læra í gegnum Netið og persónuleg og góð þjónusta. Ég fékk einstök ráð sem ég bý að í framtíðinni. Hjartans þakkir fyrir mig.“

Kennsluform:

6 vikna EINKAKENNSLA Hraðlestrarskólans er ætluð þeim er þurfa að fá grunnþekkingu í hraðlestrartækninni fljótt og undir leiðsögn kennara. Nemanda er þá fylgt eftir í 6 vikur með blöndu af einkakennslu í staðnámi og aðgangi að 6 vikna fjarnámi með prófum, tilbúnum myndskeiðum og æfingum. Kennslan fer almennt fram fyrri hluta dags – kl. 7-15 – en almennt er kennslutími mjög sveigjanlegur og auðvelt að lengja æfingaferli og þá jafnan eftir hentugleika nemanda.

  • Kennsla fer fram í Flatahrauni 31, 2. hæð.
  • Kennt á kennsluvef Hraðlestrarskólans
  • Nýtt efni opnað einu sinni í viku
  • Vikulegt árangursmat

Námskeiðið hentar fyrir:

  • 13-18 ára unglinga í grunnskóla eða framhaldsskóla sem vegna búsetu eða anna komast ekki á almennt námskeið en vilja betri undirbúning fyrir síðustu ár í grunnskóla eða fyrstu ár í framhaldsskóla.
  • 7-12 ára börn í grunnskóla sem vegna búsetu eða anna komast ekki á almennt námskeið en vilja bæta lestrarfærni sína með hjálp kennara.

Heimanám og algengur árangur:

Gert er ráð fyrir að lágmarki 30-60 mín. daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum á kennsluvef.

Algengur árangur: 
Rúm þreföldun á lestrarhraða, 15-20% aukning á skilningi.

Innifalið í námskeiðagjaldi:
Mikill aðgangur að kennara í gegnum kennsluvef, tölvupósti, síma og vefspjalli, aðgangur að kennsluvef með gögnum og æfingum á netinu, aðgangur að kennara og gögnum eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið fjarnámskeið - eða almennt hraðlestrarnámskeið - eins oft yfir ævina og hann telur þörf.

Placeholder Image

Brynjar Örn Sveinjónsson - Flugmaður

„Ég get varla mælt nógu mikið með þessari einkakennslu! Þetta hefur verið frábært í alla staði og Jón er einstaklega fær leiðbeinandi. Námskeiðið fór langt fram úr mínum björtustu vonum og ég hef náð að margfalda lestrarhraðan á ekki nema 3 vikum sem mun nýtast mér afskaplega vel bæði í námi og starfi.“

KENNARI SKOÐAR meðal annars:

  • Af hverju við lesum almennt svona hægt
  • Hvernig hægt er að vel rúmlega tvöfalda lestrarhraða án þess að skilningur detti niður.
  • Af hverju lestrarskilningur og lestraránægja eykst við að lesa hraðar.
  • Skoðar lestur mismunandi lesefnis.
  • Leiðir að finna aðalatriði með skjótum hætti.
  • Grunnþætti þess að glósa markvissar.
  • og margt fleira!
Í einkaþjálfun Hraðlestrarskólans skoðum við m.a. af hverju við lesum svona hægt
Placeholder Image

12+ klukkutímar af kennsluefni

Hér kafa ég mun dýpra en á lengstu námskeiðunum hjá mér (10 vikna almenn námskeið) þar sem ég hef meiri tíma til að kynna efnið. 

Placeholder Image

70 daga aðgangur að efninu!

En æviábyrgðin tryggir þér að þú getur alltaf óskað eftir að virkja 6 vikna fjarnámskeiðið aftur seinna - og eins oft og þú vilt - eða telur þig þurfa!

Placeholder Image

Hér stjórnar ÞÚ ferðinni!

Hvenær þú byrjar – hvar þú ert – þú lærir hraðlestur þegar þér hentar - á vef í tölvunni eða í gegnum einfalt app í síma eða spjaldtölvu!

Eftir hverju ertu að bíða?

Byrjaðu STRAX í dag að bæta lestrarfærnina þína!

6 vikna EINKAKENNSLA - 7-18 ÁRA

99.500 kr.

6 x 60-75 mín. vikulegir tímar í Flatahrauni 31.

MJÖG TAKMARKAÐ SÆTAPLÁSS - aðeins fjórir á mánuði!

FYRSTUR KEMUR - FYRSTUR FÆR!

  • Í þessari 6 vikna einkakennslu útskýri ég og kenni þér af hverju allir sem það vilja geta lesið rúmlega þrefalt hraðar en þeir gera í dag - og hjálpa þér að ná því takmarki á æfingaferlinu.
  • Ég er að sníða kennsluna algjörlega eftir þínum þörfum í lestri og námi.
  • Ég leiði þig í gegnum 20 ranghugmyndir sem gætu verið að halda aftur af þér í lestri.
  • Ég leiði þig í gegnum einfaldar lestraræfingar sem munu leyfa þér að þróa og þjálfa lestrarhæfni þína og uppfæra lestrarvenjur þínar á æfingaferlinu.
  • Ég mun síðan færa þig yfir í að þjálfa betur í því lesefni sem skiptir þig mestu máli. Hvort sem það eru skáldsögur, handbækur, námsbækur, ævisögur, tímaritsgreinar, lesefni á vef eða annað álíka lesefni.
  • Þú færð strax á fyrsta degi aðgang að 6 vikna fjarnámskeiði sem leiðir þig skref fyrir skref í gegnum allar æfingar og kennslu í um 730+ mínútum af tilbúnum myndskeiðum, æfingum og PDF-skjölum í gegnum einfaldan kennsluvef sem þú hefur aðgang að í gegnum vef eða app í síma eða spjaldtölvu.
  • ...og svo miklu meira - allt eftir þínum þörfum og á þeim tíma sem hentar þér best!
SKRÁ MIG NÚNA!

11 vikna EINKAKENNSLA - 7-18 ára

169.500 kr.

Allt innifalið sem er í grunnpakka!

  • 5 AUKAvikur eða 11 vikna EINKAKENNSLA - meiri tími með kennara - og færð meiri tíma til að festa betri lestrarfærni og námstækni í sessi til frambúðar.
  • Hentar sérstaklega vel ef lesblinda, hæglæsi, athyglisbrestur, ADHD, ADD eða aðrir þættir eru að trufla lestur eða nám barns eða unglings.
  • 60-75 mín. vikulegur fundur í fimm vikur í framhaldi af 6 vikna kennsluferlinu.
  • Hægt að nota frístundastyrki sveitarfélaganna til að greiða hluta af þessu ferli.

MJÖG TAKMARKAÐ SÆTAPLÁSS - aðeins tveir á mánuði!

FYRSTUR KEMUR - FYRSTUR FÆR!

SKRÁ MIG NÚNA!
Placeholder Image

Birna Dröfn Birgisdóttir - 23 ára Meistaranemi í alþjóðaviðskiptum

“Frábært námskeið með mjög góðum kennara sem hefur mikla þekkingu á efninu. Hjálpar einnig mikið að hafa farið yfir glósutækni, tímastjórnun og fleira. Námskeiðið stóðst mínar væntingar :-)”

Powered by Kajabi