Hér opnast frísvæði fyrir 6 vikna fjarnámskeið - almenn skráning á þetta námskeið fer þó fram hér - www.h.is/6v - en á þessu fríðsvæði sem þú opnar hér leiðir Jón Vigfús Bjarnason, Skólastjóri Hraðlestrarskólans þig í gegnum skráningarferli á www.h.is/6v, hvernig á að greiða fyrir námskeið og hvað þú þarft að hafa við hendina þegar þú byrjar námskeiðið.
Í dag þarf ég að virkja aðgang inn á fjarnámskeiðið fyrir hvern og einn og því mikilvægt að skrá þig hér inn - FRÍTT - og um leið og greiðsla eða kvittun fyrir greiðslu berst mér - virkja ég aðgang þinn!
Ef þú hefur greitt fyrir námskeiðið nú þegar eða ert að virkja æviábyrgð - ef þú hefur setið námskeiðið áður - þá máttu senda mér póst um leið og þú hefur skráð þig hér inn og ég er að virkja aðgang innan 24 tíma!
Ef enn er ógreitt - máttu ganga frá greiðslu núna og um leið og kvittun berst mér - opna ég aðgang fyrir þig innan 24 tíma!
Hraðlestrarnámskeið - 6 vikna fjarnámskeið
Hér stjórnar ÞÚ ferðinni – hvenær þú byrjar – hvar þú ert – þú lærir hraðlestur á þeim tíma dags sem hentar þér!
Hér finnur þú um 790 mínútur af kennslu í gegnum myndskeið - eða rúmlega 13 klukkustundir af kennsluefni.
+ þar af 60 mín. einkatími með kennara á fyrstu 48 tímunum til að koma þér af stað með öll skrefin á hreinu!
Einföld skref og æfingar til að bæta lestrarfærni þína til frambúðar þannig að þú hafir ekki bara gaman af því að taka upp bók og lesa þér til ánægju - heldur hafir öll þau verkfæri sem þú þarft til að tækla kröfuhart nám og starf í framtíðinni!
Allt almenna námskeiðið okkar - og vel rúmlega það!
Þegar þú hefur skráð þig á 6 vikna fjarnámið finnur þú um 790 mínútur af kennslu í gegnum myndskeið - eða rúmlega 13 klukkustundir af kennsluefni - en þetta er lang ítarlegasta námskeiðið sem við bjóðum upp á - með prófum, myndskeiðum, 60 mín. einkatíma með kennara til að taka fyrstu skrefin, 14 mismunandi hraðlestraræfingum, PDF-skjölum - öll hjálp frá kennara í gegnum ummælakerfi kennsluvefs, spjall á FB, tölvupósti eða síma, aðgangur að sérstöku hlaðvarpi með öllum hljóðskrám úr námskeiði til að hlusta á námskeið - þegar og þar sem þér hentar - og margt fleira.
Hér lærir nemandi í gegnum kennsluvef Hraðlestrarskólans. Kennari skoðar m.a.
- Af hverju við lesum almennt svona hægt.
- Hvernig hægt er að vel rúmlega tvöfalda lestrarhraða án þess að skilningur detti niður.
- Af hverju lestrarskilningur og lestraránægja eykst við að lesa hraðar.
- Skoðar lestur mismunandi lesefnis.
- Leiðir að finna aðalatriði með skjótum hætti.
- Grunnþætti þess að glósa markvissar.
- Mismunandi glósuleiðir í vinnu eða námi.
- Lestur af tölvuskjá eða lófatölvum.
- Hvernig halda megi yfirsýn yfir mikið lesefni.
- Leiðir að halda meiri einbeitingu í lestri jafnvel undir miklu álagi.
- Leiðir að betri undirbúningi fyrir kennslustundir og fundi.
Hentar fyrir: Alla (16 ára til 94 ára), sérstaklega fyrir námsmenn en hentar líka fyrir fólk í atvinnulífinu eða þá sem þurfa eða vilja almennt lesa mikið.
Kennsluform:
- Kennt á kennsluvef Hraðlestrarskólans
- Nýtt efni opnað einu sinni í viku
- Vikulegt árangursmat
Heimanám: Gert er ráð fyrir að lágmarki klukkustundar daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum.
Algengur árangur: Tvöföldun til þreföldun á lestrarhraða, 15-20% aukning á skilningi.
Vefábyrgð og æviábyrgð fylgir hraðlestrarnámskeiðum Hraðlestrarskólans og tryggir þér rétt til að sitja sama námskeið aftur þegar þú hefur meiri tíma án endurgjalds, hvort sem það er til að bæta grunninn enn frekar, skerpa kunnáttuna eða bara ná enn meiri árangri. Kynntu þér upplýsingar um ábyrgð Hraðlestrarskólans á http://www.h.is/abyrgd.