60 sekúndna tímamælir!
- fyrir hraðlestraræfingar!
Leiðbeiningar:
ÓKEYPIS æfing í hraðlestri
Þú þarft:
- Lesefni (t.d. skáldsögu) og blýant.
- Notaðu fingur, blýant eða penna til að stjórna augnhreyfingum.
Skref:
- Þegar þú ert tilbúin/n, notaðu tímamælinn hér að ofan til að tímasetja lesturinn þinn.
- Merktu „A“ þar sem þú byrjar að lesa.
- Merktu „X“ þar sem þú hættir að lesa.
- Finndu út hversu mörg orð þú lest á mínútu með því að nota H.is OÁM reiknivélina - www.h.is/oam.
- Endurtaktu æfinguna 5–15 sinnum á dag í að minnsta kosti 7 daga – helst í 21 dag - til að festa þessa lestrarvenju í sessi til frambúðar.
Til að endurtaka æfinguna:
- Reyndu að fara aðeins hraðar með fingrinum í hvert sinn.
- Merktu nýtt „A“ þar sem þú hættir síðast (þar sem þú merktir „X“ áður).
- Tímasettu lesturinn þinn með 60 sekúndna tímamælinum hér að ofan.
- Skráðu hjá þér árangur í hvert sinn - en allavega einu sinni í byrjun og einu sinni í síðustu æfingu.
Ég hvet þig eindregið til að finna út OÁM (orð á mínútu) í hvert sinn sem þú framkvæmir æfinguna og skrá niðurstöðurnar í hvert skipti til að sjá framfarir þínar. Þú getur notað þetta eyðublað til að fylgjast með árangri þínum – PDF á hnappnum hér fyrir neðan – eða tengilinn á Google skjölunum þínum hér!
Hér finnur þú vinnuskjal (PDF) fyrir heimaæfingar!Hér færðu einfaldar leiðbeiningar og skrefin til að mæla og reikna út hve hratt þú lest í dag - með einföldum hætti!
Hér finnur þú fyrstu skrefin á 6 vikna fjarnáminu - allt sem þú þarft til að koma þér af stað!
Í þessari bók ætla ég mér það einfalda verkefni að útskýra fyrir þér af hverju þú hefur burði til að lesa hraðar og hvað hefur haldið aftur af þér hingað til.