...að njóta þess að lesa bækur - og af hverju lestrarhraði hefur áhrif á einbeitingu og lestraránægju þess!
...að hafa gaman af því að taka upp bók sér til skemmtunar!
...að hlakka til þess að lesa enn fleiri bækur en það gerir í dag!
"Ég ákvað að skrá dóttir mína, sem á við mikla lesblindu að stríða, á námskeið hjá Hraðlestrarskólanum veturinn 2013. Hún ætlaði nú alls ekki að vilja fara en ég sagði henni að prófa í eitt skipti. Þegar hún var búin með fyrsta daginn, spurði ég hana hvernig hefði verið. Hún sagði ekkert í fyrstu en síðan fékk að heyra “hvers vegna í ósköpunum varst þú ekki búin að skrá mig fyrr”. Eftir námskeiðið hefur hún tekið miklum framförum í lestri og námið reynist henni auðveldara. Hún var mjög ánægð með námskeiðið og það gleðilega er að nú var hún að biðja sjálf um að fara aftur á hraðlestrarnámskeið."
"Sonur minn 12 ára var ekki mikið fyrir að lesa þrátt fyrir hvatningu og samlestur. Mest hefur það verið hæglestur á Andrésar Andar blöðum/Syrpu. Það var frábær fjárfesting að bjóða honum á þetta námskeið. Þarna sá hann fyrst að það var skemmtilegt að taka upp bók. Nú liggur Ævintýraeyjan eftir Enid Blyton, lesin á dagsparti á sófaborðinu. Hið sama má segja um 11 ára barnabarn, sem fékk að fljóta með. Bestu þakkir."
Hentar fyrir: 10 til 12 ára grunnskólabörn.
Kennsluform:
Heimanám: Gert er ráð fyrir að lágmarki 30-45 mín. daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum og börnin leidd í gegnum myndskeið á nemendavef Hraðlestrarskólans.
Algengur árangur: Tvöföldun til þreföldun á lestrarhraða, minni hræðsla við að taka upp bók, aukin lestrarfærni, meiri lestraráhugi og einbeiting við lestur.
Krakkaábyrgð fylgir námskeiðinu HraðlestrarKRAKKAR, sem þýðir að þátttakendur á námskeiðinu geta tekið námskeiðið eins oft og þau vilja eða telja þörf á fram til og út þrettánda aldursárið sitt – og festa um leið 17.500 kr. afslátt inn á almennt hraðlestrarnámskeið í framtíðinni. - Kynntu þér upplýsingar um ábyrgð Hraðlestrarskólans.
– Kíktu á ítarlegri upplýsingar um verð, greiðsluleiðir og afslætti.
Innifalið í námskeiðagjaldi..
Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur í gegnum kennsluvef, aðgangur að kennsluvef með gögnum og æfingum á netinu, aðgangur að kennara eftir að námskeiði lýkur og krakkaábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft til 14 ára aldurs og hann telur þörf.
Taktu skrefið strax í dag og festu barninu þínu betri lestrarfærni og lestrarhraða í sessi til frambúðar! Leyfðu því að upplifa þá skemmtun sem góð bók veitir þeim - um leið og þú auðveldar þeim skólagöngu næstu ára!
Er barnið þitt að lesa nóg í dag eða vill það kannski bara lesa enn meira?
Ekki hika við að skjóta spurningum þínum í Messenger hér að neðan og þá er ég almennt að smella svari á þig innan nokkurra mínútna!
50% Lokið